Velkomin á bloggsvæði Önnu

13.2.2008 05:14:37 / anna-flower

gleði eða geðheilsa;)

Gleði eða geðheilsa ???
>Til að lífga uppá gráan hversdagsleikann og gera dagana meira spennandi
> og innihaldsríkari, er mælst til að þú gerir eitt/fleiri/öll
> eftirtalin atriði reglulega... hvort sem það er að hoppa í stað þess að
> ganga, hengja flugnanet í kringum skrifborðið þitt eða.....
>
>1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu. Miðaðu
> með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á
> sér.
>
>2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta
> rödd þinni.
>
>3. Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
>Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða
>Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
>
>4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig,
> spyrðu ,,má bjóða þér franskar með þessu?"
>
>5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir
>,,Innbox"
>
>6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót
>
>7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar allir
> eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
>
>8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
>
>9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
>
>10. Ekki nota punkta.
>
>11. Hoppaðu í stað þess að ganga.
>
>12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur
> svarað.
>
>13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé ,,taka
> með".
>
>14. Syngdu með í óperunni.
>
>15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
>
>16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð
> af diski alla daga.
>
>17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því
> þú sért ekki alveg upplögð.
>
>18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock
> Hard.
>
>19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég
> vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill